sunnudagur, 31. ágúst 2008
En já...
Já ég er flutt í Reykjavíkina og líður vel þar. Skólinn byrjaði í síðustu viku og á nýnemakynningunni þurftum við að semja dans og sýna hann... Já ég er ekki að grínast. Ég samdi alveg minn dans og það og svo þegar tónlistin byrjaði þá bara fraus ég. Við áttum að dansa nokkrum sinnum við mismunandi tónlist og túlka dansinn okkar eftir tónlistinni. Úff. Greinilegt hverjir voru að byrja í leiklist og hvaða stelpur voru einhverjar listdanspíur. Ekkert nema píróett og læti. En skólinn sjálfur er samt skemmtilegur. Spennandi fólk og svona. En já svona til að létta lund ykkar á sunnudegi sem er afar þunnur finnst mér þá er eitt hérna sem er ógeðslega fyndið. Maður spyr sig hvort þetta sé einn og sami maðurinn í mismunandi víddum??
þriðjudagur, 19. ágúst 2008
plöh

Svo eiga systur mínar 2 afmæli í dag! Til hamingju með afmælið systur :D
Túrilú
fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Quadrosables

Já ég er komin frá Barcelona og er hress og tönuð. Það var rosalega heitt úti og gott veður og við notuðum tímann alltaf í eitthvað annað en sólbað. Þegar svo loksins átti að fara á ströndina þá var skýjað. Ömó en ég er samt sem áður leðurtönuð. Langt síðan að ég verið svoleiðis. Ég verslaði og verslaði fyrir allan peninginn minn úti. Bætti fötum við í safnið mitt. Hef samt miklar áhyggjur af því að nýju fötin mín komist ekki fyrir í þetta safn þar sem það er orðið of stórt. Annars er Barcelona afskaplega falleg borg. Það er greinileg

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)