Ýmislegt stöff frá mér.

miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Jessica Joslin

Já ég get ekki sagt annað en það hafi komið mér á óvart að einhver skuli hafa kommentað á bloggið mitt um daginn. Takk Jón Helgi :) Mér bara datt ekki í hug að nokkur læsi þessi lítilfjörlegu skrif mín. En það eru að fara að koma myndir von bráðar. Bíð bara eftir því að komast í betri tölvu og kortalesara svo ég geti hent þeim inn en lífið leikur akkúrat við mig þessa stundina eða þannig. Tölvan mín er biluð eða bara ónýt. Bíllinn minn er bilaður og síminn minn er bilaður og ég er blönk og fæ eflaust hvergi vinnu í sumar. Úff. En ég er allavega á lífi og er hraust sem er gott. Auk þess hef ég verið að snúa mér að myndlistinni að undanförnu. Ég hef náttúrulega hellings tíma aflögu. Vinn bara 2 daga í viku og er í skólanum 3 daga í viku.
En ég var að blaða í gömlu tölublaði af menningartímaritinu Stínu um daginn og rakst á þessa listakonu sem heitir Jessica Joslin. Minnir mig svolítið á það sem ég var að gera hérna einu sinni. "And the circus leaves town..." Anyone? Allavega fíla ég hana.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég les/ kíki reglulega á bloggið þitt;) gaman að þú ert farin að skrifa aftur...ég vona að "kreppan" fari ekki illa með þig. knús móa