Ýmislegt stöff frá mér.

sunnudagur, 14. júní 2009

Paradísareyjan

Oh já það er yndislegt að vera í Eyjum. Frábært að fá að vera úti allan daginn. Enda er maður dauður þegar maður kemur heim. Það er líka hellingur að gera hjá mér. Er að undirbúa sýningu sem verður á goslokahátíðinni. Verð með innsetningu og nokkrar myndir. Komin með vinnuaðstöðu og alles. Loksins hefur maður fundið rokkið í sér aftur. Ekki seinna vænna. Ég verð 28 ára á morgun. OMFG. Maður verður að nota þessi ár sem maður á eftir í framkvæmdir því ég hef ekki beint verið framkvæmdaglöð síðan að ég hætti í skólanum. Engin vinnuaðstaða og uppreisn gegn listheiminum. En það er búið núna. Nú er ég bara í stuði.

2 ummæli:

María sagði...

Til hamingju með afmælið og til hamingju með opinbera kennaratitilinn. Mig langar að sjá bolina sem þú varst að gera - hvar selurðu??

Nafnlaus sagði...

Heyrðu ég hef eiginlega engan stað til að selja á. Sel bara sjálf hehe. Er svo að fara að vinna í því að gera heimasíðu.

Jóna Heiða