via Neatorama
sunnudagur, 4. október 2009
Jason Hackenwerth
Já ég er alltaf að rekast á spennandi listamenn. Þar sem ég er mikil blöðrumanneskja er kannski ekki skrítið að Jason Hackenwerth hafi eitthvað heillað mig. Hann býr til þessi risastóru kvikindi úr blöðrum sem líta svolítið út eins og geimverur eða einhver neðansjávardýr fyrir mörgum milljónum ára.
via Neatorama
via Neatorama
þriðjudagur, 25. ágúst 2009
sunnudagur, 14. júní 2009
Paradísareyjan
Oh já það er yndislegt að vera í Eyjum. Frábært að fá að vera úti allan daginn. Enda er maður dauður þegar maður kemur heim. Það er líka hellingur að gera hjá mér. Er að undirbúa sýningu sem verður á goslokahátíðinni. Verð með innsetningu og nokkrar myndir. Komin með vinnuaðstöðu og alles. Loksins hefur maður fundið rokkið í sér aftur. Ekki seinna vænna. Ég verð 28 ára á morgun. OMFG. Maður verður að nota þessi ár sem maður á eftir í framkvæmdir því ég hef ekki beint verið framkvæmdaglöð síðan að ég hætti í skólanum. Engin vinnuaðstaða og uppreisn gegn listheiminum. En það er búið núna. Nú er ég bara í stuði.
þriðjudagur, 2. júní 2009
Jæja nú er sumarið komið og ég opinberlega orðinn kennari. Fer til Eyja á fimmtudaginn þar sem ég mun vera flokkstjóri í Vinnuskólanum í sumar. Ég ætla að halda myndlistarsýningu og hafa það gott með familíunni minni. Síðan er bara Þjóðhátíð og ég mæti i nýju vinnuna mína liggur við bara beint úr Dalnum.
fimmtudagur, 14. maí 2009
Stuð
Jæja peeps. Skólinn er búinn þannig að nú get ég farið að skrifa hérna af viti. Skal láta verða af því. Annars er ég alltaf að leita að skemmtilegum linkum til að setja hérna til hliðar. Alltaf að bætast við eitthvað. Annars er allt gott að frétta. Útskrifast þann 30. maí og verð þá myndmenntakennari. Vúhú. Ég hyggst fara í meira nám en ekki alveg strax. Er komin með nett ógeð af því að vera blankur námsmaður. Er komin með vinnu í haust. Byrja 4. ágúst strax eftir þjóðhátíð á Baugi. Nei ekki group heldur leikskólanum Baugi. Hlakka rosalega til. Þetta er frekar nýr leikskóli sem byggir á Reggio Emilio stefnunni. Þetta verður spennandi. Víí.
Hérna kemur eitt svaka töff video.
Hérna kemur eitt svaka töff video.
þriðjudagur, 28. apríl 2009
Reuben Margolin
Muniði eftir Theo Jansen? Hérna er annað gott dæmi um allsvakalegan nördaskap eða Reuben Margolin sem er kínetískur listamaður. List þeirra tveggja minnir svona frekar á vísindi og verkfræði en er engu að síður afskaplega lífrænt og fallegt.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)








