Jaháááá. Enn bólar ekkert á asísku listinni sem ég ætlaði að skrifa um. Það er bara allt crazy að gera. En það fer að hægjast á þessu hjá mér. Sumarið nálgast og svona. Keyrði á í morgun hahaha. Ég var sem sagt alveg nývöknuð. Úúúps. Anyways smá uppbót fyrir akkúrat enga þemadaga. Spurning hvort að það verði eitthvað af þeim. Ég er ekki alveg í ritgerðarstuði þessa dagana. En við sjáum hvað setur. Toodles...
föstudagur, 18. apríl 2008
föstudagur, 4. apríl 2008
Japanskt
Já þessar brjáluðu færslur um asíska list verða aðeins að bíða. Hef eitthvað voðalega lítinn tíma fyrir ritgerðir af þessu tagi akkúrat núna en þær koma! Sjáiði til. Læt þetta nægja handa ykkur í bili... Flettibókin Rainbow in your Hands eftir Japanann Masashi Kawamura. Og linkur ef þið viljið sjá þetta í action.Heyrumst vonandi fljótlega.
þriðjudagur, 1. apríl 2008
Nýir þemadagar
Já þessa vikuna ætla að ég að vera með asískt þema á síðunni og ætla aðeins að fjalla um asíska list, manga, anime o.s.fr.v. Það var nefnilega eitt sem ég rak mig á þegar ég var í listnámi var að það er mjög lítið kennd önnur listasaga en sú evrópska. Listasagan í Asíu og Arabíu t.d. er nefnilega mjög viðamikil en það hefur því miður bara farið alltof lítið fyrir henni. Maður lærði reyndar smá en þá voru það reyndar bara samtímalistamenn og þá sérstaklega í Ameríku. Ég ætla bara rétt að byrja þessa þemadaga með stuttu video sem ég rakst á, innblásið af hinum hefðbundnu kínversku málverkum. Málverk sem segir ljóð og hreyfist...
mánudagur, 31. mars 2008
sunnudagur, 30. mars 2008
Duló
Já eins og þið sjáið er ég aðeins að reyna að koma síðunni minni í sæmilegt horf. Bæta við linkum á bloggara og inn á síður sem ég heimsæki daglega. Þetta fer að komast í samt lag vonandi. Annars bíð ég bara spennt eftir vorinu. Það verður mikið að gerast í vor. Ég er að undirbúa myndlistarsýningu með verkum eftir börnin í sérdeildinni í skólanum og svo mun ég nota sumarið til að undirbúa mína eigin einkasýningu. Túrilú í bili. Verð vonandi búin að semja einhvern magnaðan pistil bráðum.
laugardagur, 22. mars 2008
fimmtudagur, 20. mars 2008
*hrollur*
Já ég get ekki sagt annað en að það er virkilega yndislegt að vera komin í páskafrí. Ekki misskilja mig... mér finnst mjög gaman í vinnunni en það er líka gott að fá frí. Ég er búin að vera mjög busy eitthvað. Gott að hvíla sig. En já ég hélt upp á páskafrísbyrjun með því að fara í menningarferð til Reykjavíkur. Og eins og sönnum Íslendingi sæmir má maður ekki gleyma Kringlunni. Sérstaklega á þessum "góðærisdögum" í fjármálaheiminum. Í Kringlunni mættu mér gotharar í tonnatali enda er Kringlan Staðurinn ef að maður er Gothari. Ég sá eina stelpu í hefðbundnum gothfötum. Svo sem ekkert óvanalegt. Hún var í svörtum buxum með einhverjum böndum sem héngu, með svart, sítt en flatt hár, gaddaól o.s.fr.v. Allt tiltölulega eðlilegt fyrir mér en svo var gellan bara með vampírutennur. Jább þið lásuð rétt. Ég býst við því að það er fólk þarna úti sem lætur fixa svoleiðis. Annars veit ég ekki hvort að þetta voru alvöru tennur, gervi alvöru tennur eða bara gervi tennur.Ég er búin að vera mjög dugleg að spara og ákvað að spreða smá til að verðlauna mig og ég get ekki annað sagt en að ég hafi gert verulega góð kaup. Ekki þó í Kringlunni heldur í Kolaportinu og Spúútnik. Keypti mér nefnilega 2 kg af fötum á einungis 6 þúsund krónur og geri aðrir betur. Mæli eindregið með kílómarkaði ef ykkur bráðvantar ný föt og buddan er tóm og allir eru þunglyndir af krepputali. Ný föt gleðja hjartað *hóst* veruleikafirrt
*hóst*Síðan kíkti ég í bíó á spænsku myndina El Orfanato. Bjóst ekki við öðru en að ég yrði hrædd í bíó og sú varð raunin. Var lengi að ná mér eftir hana og mæli ég eindregið með henni. Ég gerði svo sem fullt annað líka í Reykjavík. Horfði á anime, labbaði helling. Fór í heimsókn borðaði og til að toppa allt horfði ég á Interview with the vampire.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
