Muniði eftir Theo Jansen? Hérna er annað gott dæmi um allsvakalegan nördaskap eða Reuben Margolin sem er kínetískur listamaður. List þeirra tveggja minnir svona frekar á vísindi og verkfræði en er engu að síður afskaplega lífrænt og fallegt.
þriðjudagur, 28. apríl 2009
þriðjudagur, 7. apríl 2009
sunnudagur, 5. apríl 2009
Alfreð Flóki
Jæja mig langar bara að minna ykkur á sýninguna hans Alfreðs Flóka í Hafnarhúsinu, Skuggadrengur - Heimur Alfreðs Flóka. Þetta er alveg frábær sýning og þarna fann ég mér íslenskan lista
mann sem ég get loks haft dálæti af. Ég nefnilega vissi ekkert hver hann var fyrr en ég sá umfjöllun um þessa sýningu en það er kannski ekkert skrítið því það er stórt gap í umfjöllun um hann í fjölmiðlun allt frá því að hann dó. Ég hef sjálf mikið gert pennamyndir og loksins íslenskur myndlistamaður sem ég get fílað í tætlur. Myndirnar hans eru óhuggulegar og erótískar í senn. Þær minntu mig svolítið á ætiþrykkið hans Albrecht Dürer sem ég hef alltaf haft dálæti á. Þrungnar táknum og svolítið melankólískar. Það er líka fjallað svolítið um hann sem persónu og það er heill salur með sjálfsmyndum hans sem og viðtölum og blaðagreinum um hann sem birtust í Vísi, Þjóðviljanum og fleiri blöðum á þess
um tíma þegar hann var hvað vinsælastur. Maður getur einnig hlustað á viðtöl við hann í gegnum headphones sem koma út úr veggnum og það er gaman að heyra hvað var um að vera í kollinum á honum. Frábær sýning sem ég mæli með. Hún stendur held ég til 10. maí og Sjón er sýningarstjóri.
Tjékk it!
mann sem ég get loks haft dálæti af. Ég nefnilega vissi ekkert hver hann var fyrr en ég sá umfjöllun um þessa sýningu en það er kannski ekkert skrítið því það er stórt gap í umfjöllun um hann í fjölmiðlun allt frá því að hann dó. Ég hef sjálf mikið gert pennamyndir og loksins íslenskur myndlistamaður sem ég get fílað í tætlur. Myndirnar hans eru óhuggulegar og erótískar í senn. Þær minntu mig svolítið á ætiþrykkið hans Albrecht Dürer sem ég hef alltaf haft dálæti á. Þrungnar táknum og svolítið melankólískar. Það er líka fjallað svolítið um hann sem persónu og það er heill salur með sjálfsmyndum hans sem og viðtölum og blaðagreinum um hann sem birtust í Vísi, Þjóðviljanum og fleiri blöðum á þess
um tíma þegar hann var hvað vinsælastur. Maður getur einnig hlustað á viðtöl við hann í gegnum headphones sem koma út úr veggnum og það er gaman að heyra hvað var um að vera í kollinum á honum. Frábær sýning sem ég mæli með. Hún stendur held ég til 10. maí og Sjón er sýningarstjóri.Tjékk it!
þriðjudagur, 3. mars 2009
Theo Jansen
Jæja var að kynnast nýjum listamanni sem er alveg magnaður. Hann er hollenskur verkfræðingur/ listamaður og er búinn að eyða síðustu 20 árum sínum í búa til nýja lífveru. Lífverurnar eru búnar til úr rafmagnsrörum og ganga einungis fyrir vatnsþrýstingi og vindi. Það er alveg ótrúlegt að sjá þetta og bókstaflega krípí, sérstaklega því að það er ekkert rafmagn eða neitt sem að knýr þessi dýr.
Tjékk it!
Tjékk it!
sunnudagur, 22. febrúar 2009
Jæja ég er farin að vera frekar framtakssöm. Vildi bara láta vita að ég er farin að búa til litla nærboli á börn og sængurver. Nærbolirnir eru hvítir í mismunandi stærðum: 2-3 ára, 3-5 ára, 6-9 ára og 7-11 ára. Þeir eru síðan með handprentuðum myndum eftir mig. Kostar 750 kr. stykkið og síðan eru sængurverin úr dökkbláu lérefti með handprentuðu mynstri. Kostar 3500 kr.
Ég veit að er frekar hallærislegt að koma ekki með myndir en þær fara að koma. Ég þarf að skipuleggja mig svolítið þessa dagana því að tölvan mín er biluð. Ég er með myndavél en ég er ekki með snúru til að tengja í tölvu og verð þess vegna að gera þetta í kortalesaranum alltaf heima í eyjum. Hallæri!

miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Jessica Joslin
Já ég get ekki sagt annað en það hafi komið mér á óvart að einhver skuli hafa kommentað á bloggið mitt um daginn. Takk Jón Helgi :) Mér bara datt ekki í hug að nokkur læsi þessi lítilfjörlegu skrif mín. En það eru að fara að koma myndir von bráðar. Bíð bara eftir því að komast í betri tölvu og kortalesara svo ég geti hent þeim inn en lífið leikur akkúrat við mig þessa stundina eða þannig. Tölvan mín er biluð eða bara ónýt. Bíllinn minn er bilaður og síminn minn er bilaður og ég er blönk og fæ eflaust hvergi vinnu í sumar. Úff. En ég er allavega á lífi og er hraust sem er gott. Auk þess hef ég verið að snúa mér að myndlistinni að undanförnu. Ég hef náttúrulega hellings tíma aflögu. Vinn bara 2 daga í viku og er í skólanum 3 daga í viku.En ég var að blaða í gömlu tölublaði af menningartímaritinu Stínu um daginn og rakst á þessa listakonu sem heitir Jessica Joslin. Minnir mig svolítið á það sem ég var að gera hérna einu sinni. "And the circus leaves town..." Anyone? Allavega fíla ég hana.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)