Jæja var að kynnast nýjum listamanni sem er alveg magnaður. Hann er hollenskur verkfræðingur/ listamaður og er búinn að eyða síðustu 20 árum sínum í búa til nýja lífveru. Lífverurnar eru búnar til úr rafmagnsrörum og ganga einungis fyrir vatnsþrýstingi og vindi. Það er alveg ótrúlegt að sjá þetta og bókstaflega krípí, sérstaklega því að það er ekkert rafmagn eða neitt sem að knýr þessi dýr.
Tjékk it!
þriðjudagur, 3. mars 2009
sunnudagur, 22. febrúar 2009
Jæja ég er farin að vera frekar framtakssöm. Vildi bara láta vita að ég er farin að búa til litla nærboli á börn og sængurver. Nærbolirnir eru hvítir í mismunandi stærðum: 2-3 ára, 3-5 ára, 6-9 ára og 7-11 ára. Þeir eru síðan með handprentuðum myndum eftir mig. Kostar 750 kr. stykkið og síðan eru sængurverin úr dökkbláu lérefti með handprentuðu mynstri. Kostar 3500 kr.
Ég veit að er frekar hallærislegt að koma ekki með myndir en þær fara að koma. Ég þarf að skipuleggja mig svolítið þessa dagana því að tölvan mín er biluð. Ég er með myndavél en ég er ekki með snúru til að tengja í tölvu og verð þess vegna að gera þetta í kortalesaranum alltaf heima í eyjum. Hallæri!
Ég veit að er frekar hallærislegt að koma ekki með myndir en þær fara að koma. Ég þarf að skipuleggja mig svolítið þessa dagana því að tölvan mín er biluð. Ég er með myndavél en ég er ekki með snúru til að tengja í tölvu og verð þess vegna að gera þetta í kortalesaranum alltaf heima í eyjum. Hallæri!
miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Jessica Joslin
Já ég get ekki sagt annað en það hafi komið mér á óvart að einhver skuli hafa kommentað á bloggið mitt um daginn. Takk Jón Helgi :) Mér bara datt ekki í hug að nokkur læsi þessi lítilfjörlegu skrif mín. En það eru að fara að koma myndir von bráðar. Bíð bara eftir því að komast í betri tölvu og kortalesara svo ég geti hent þeim inn en lífið leikur akkúrat við mig þessa stundina eða þannig. Tölvan mín er biluð eða bara ónýt. Bíllinn minn er bilaður og síminn minn er bilaður og ég er blönk og fæ eflaust hvergi vinnu í sumar. Úff. En ég er allavega á lífi og er hraust sem er gott. Auk þess hef ég verið að snúa mér að myndlistinni að undanförnu. Ég hef náttúrulega hellings tíma aflögu. Vinn bara 2 daga í viku og er í skólanum 3 daga í viku.En ég var að blaða í gömlu tölublaði af menningartímaritinu Stínu um daginn og rakst á þessa listakonu sem heitir Jessica Joslin. Minnir mig svolítið á það sem ég var að gera hérna einu sinni. "And the circus leaves town..." Anyone? Allavega fíla ég hana.
þriðjudagur, 3. febrúar 2009
fimmtudagur, 29. janúar 2009
Plögg
Úff það er svo fallegt úti. Trén eru öll útí snjó og líta út eins og bómullarhnoðrar. Sólin skín og það er algert logn. Mmmm. En já ég er á fullu. Ég þarf að skila kennsluáætlun á morgun, klára 2 myndir sem ég er að selja, undirbúa sushi kvöld, taka til og fleira og fleira.
En já bara að láta vita: Ég fer að posta fleiri myndum af verkunum mínum og svona því sem ég er að gera þessa dagana. Ég mála eftir pöntun og ýmislegt. Einhvern veginn verður maður að meika money þessa dagana.
En já bara að láta vita: Ég fer að posta fleiri myndum af verkunum mínum og svona því sem ég er að gera þessa dagana. Ég mála eftir pöntun og ýmislegt. Einhvern veginn verður maður að meika money þessa dagana.
laugardagur, 24. janúar 2009
Metamorphosis
laugardagur, 27. desember 2008
Ja hérna. Ég held að það hafi aldrei liðið svona langur tími á milli blogga hjá mér. Ég er upptekin manneskja. Skólinn hefur gengið ágætlega og það er mikið að gera. Ég er búin að vera blönk í allt haust þannig að ég hef verið að vinna 2 vinnur með skólanum. Annars vegar að bera út dagblað og vinna á frístundaheimilinu Glaðheimum. Ég er nú hætt að bera út blaðið sökum svefnskorts. Það er svolítið mikið á mann lagt að vakna kl. 4 - 5 og bera út, fara svo í skólann, fara svo beint í vinnu, í ræktina (þegar ég nenni), heim að elda, læra, fara að sofa loksins um og eftir miðnætti og vakna svo aftur kl. 4. Úff. Eltist líka um 10 ár eða eitthvað í haust. En ég hef samt sem áður heilsuna sem er gott. Er bara að njóta lífsins í eyjum. Ó já.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)