Ýmislegt stöff frá mér.

laugardagur, 2. október 2010

Allt crazy

Já það er brjálað að gera fólk. Er í 100% námi og 50% vinnu og lítill tími til að sinna myndlistinni. En ég er samt sem áður byrjuð að skipuleggja hvað ég ætla að vera með á jólabazarnum í vetur. Við verðum eflaust nokkrar sem vorum með bazarinn í sumar á Goslokahátíðinni og vonandi fleiri. Geggjuð jólastemmning og jólaglögg og fullt af töff handverki. En já ég er byrjuð að mixa fleiri slaufur. Fullt fyrir stráka úr allskonar efnum og stelpum líka. Hálsslaufur, hárslaufur, spennur, nælur, hálsmen og ég veit ekki hvað og hvað. Ágætt að hafa svona bazar til að vinna sér inn aur fyrir jólagjöfum. En já hér eru nokkrar slaufur til að fríska upp á minnið.

fimmtudagur, 30. september 2010

Í spilaranum


Síðustu daga hef ég verið að hlusta á plötuna Innerspeaker með hljómsveitinni Tame Impala. Algjör eðal plata. Svona psychedelískt rokk og minnir mig svoldið á Hawkwind stundum. Mæli eindregið með þessari sveit. Ég allavega hlusta ekki á annað þessa dagana.


Tame Impala - Solitude is Bliss Smá myndband en Ath! Ekki fyrir viðkvæma dýraunnendur. :S

miðvikudagur, 29. september 2010

Whoop whoop

Jæja fólkið langt síðan að ég hef látið í mér heyra. Vá ég bara hætti í vinnunni minni, byrjaði í skóla, byrjaði aftur í vinnunni minni og það er brjálæðislega mikið að gera. Elska það. Dreymir svo steikt þá. Er að spá í að koma með svona steikta draumapistla eins og ég gerði í den þegar ég var hálf nuts. En já ég stefni svo að því að koma með eitthvað smá á hverjum degi. Verð að vera með eitthvað prógram svo ég geri eitthvað.
En já ég er semsagt aftur komin í LHÍ. Ótrúlegt hvað maður leitar alltaf aftur þangað enda frekar kósý þar. Gaman að sitja í kaffiteríunni og ræða heimsmálin við samnemendur mína.

laugardagur, 28. ágúst 2010



Langar aðeins of mikið í þessu Alexander Wang gleraugu. Hef haft augastað á þeim svolítið lengi en ég er ekki viss um að sú staða breytist eitthvað í bráð miðað við fjárhaginn. :(

Svo kominn smá tími á góðar færslur hérna næstu daga. Er bara ekki alveg í stuði. Þarf að læra fyrir mánudaginn og er ekki byrjuð og þarf þúst að skrifa fullmótaða rannsóknarspurningu ca. 100 orð sem gæti hugsanlega tengst lokaverkefninu mínu úfff. Er ekki komin svona langt það er á hreinu!

þriðjudagur, 3. ágúst 2010



Jæja þá er Þjóðhátíð lokið og í tilefni af gay pride næstu helgi ætla ég að sýna ykkur bakstur helgarinnar. Algjörlega huge köku, 6 hæða svampbotnaköku í Gay Pride litunum með alveg scrumptious smjörkremi. Mmm Mmm mmm. Gríðarlega heilsusamlegt. Enda ekki mikið um neitt heilsusamlegt þessa helgi ársins. Er nú þegar búin að panta mér ferð til útlanda á sama tíma að ári. Eða þannig. Kannski best bara að byrja að safna fyrir ferð fyrst.




fimmtudagur, 29. júlí 2010

Þjóðhátíðarbaksturinn



Jæja þá er ég búin að baka möffinsið í dalinn. Súkkulaði möffins með bleiku glimmeri. Mmmm scrumptious. Á svo bara eftir að setja krem á Kökuna góðu. Mmm Mmm mmmm.

miðvikudagur, 28. júlí 2010

Fuji instax

Jæja ég er nú hálfgerður myndavélasafnari orðinn. Elska myndavélar og elska hversu fjölbreytilegan karakter þær sýna. Ég var heavy svekkt þegar ákveðið var að hætta framleiðslu Polaroid filmanna. Yndislega fallegar filmur með svona retro blæ. En ég heyrði um daginn að það væri byrjað að framleiða þær aftur og bíð spennt eftir því að þær komi í búðir. En um leið og Polaroid filmurnar voru hættar að koma af færibandinu greip Fuji tækifærið og byrjaði að framleiða instant myndavélar eða Fuji Instax. Rétt eins og Polaroid eru myndirnar alveg rosalega fallegar og mig langar í eina svona.





Svo sjáum við hérna hversu fallegar þessar myndir eru.