fimmtudagur, 31. júlí 2008
Maður lifandi
Hæ hó vil bara láta vita að ég er enn á lífi og í fullu fjöri. Eftir nokkra klst mun ég leggja af stað til Barcelona þar sem ég verð í eina viku að living da vida loca. Það er eins gott að það verði gaman því þjóðhátíðin í ár verður víst allsvaðaleg. En mig langar samt meira til útlanda. :P Síðan kem ég heim og hefst þá handa við að flytja dótið mitt í nýju íbúðina sem ég er að fara að leigja. Ég er að verða 101 hyski enn eitt skiptið. En við heyrumst síðar þegar ég nenni að skrifa eitthvað innihaldsríkt og fræðandi. Ble.
laugardagur, 21. júní 2008
Fjör
Gæti það verið að Angelina Jolie sé að leika í góðri mynd loksins? Ég skil ekki alveg hvernig hún fer alltaf að þessu. Gone in 60 seconds, Tomb Raider þúst kommon. (Sky Captain of tomorrow og Girl interrupted eru reyndar undanteknar) Ég sá trailerinn að Wanted í gær og fannst hann frekar töff og mig langar að sjá í bíó. Ekki spillir fyrir að myndin fær 7,6 á imdb og James McAvoy leikur í henni. Og hann er náttúrulega súperhot gaur. En það vita náttúrulega allir.En já það sem er að frétta af mér er að ég er orðin 27 ára og orðin rauðhærð. Já nú eru krakkarnir ekki lengur að rugla mér saman við Ronju lengur. Kannski bara Línu en hún er líka kúl. Hver vill ekki vera eins og Lína töffari?
Mínir menn í Rússlandi komust áfram í undanúrslitin áðan með góðum sigri á Hollandi. Gjörsamlega yfirspiluðu þá. Pavlyuchenko er náttúrulega geðveikur og hinn framherjinn líka. Líta soldið út eins og fermingarstrákar. Þeir eru líka alltaf sætastir...
Er einhver í stuði í vikunni fyrir að gera eitthvað skemmtó? Pikknikk eða fótbolta eða eitthvað??
mánudagur, 16. júní 2008
Vá já ég er búin að vera netlaus í þónokkuð langan tíma. Tölvan biluð og svo skrapp ég til Reykjavíkur í viku. Fór eiginlega bara um leið og ég komst í frí frá vinnu. Oh það er svo gott. Ég fór með fyrstu filmuna úr Holgunni minni í framköllun. Þessi mynd minnir á það hve sumrin eru frábær. Þó að þau séu ekki brjálæðislega heit þá er allavega ekki snjór. Svalandi!
Það misheppnuðust 4 af 12 myndum af þessari filmu. Þurfti endilega að gera einhverjar tilraunir með flassið og það varð algert mis. En hinar myndirnar voru bara fínar. Það er svo skemmtilegur karakter í myndum sem eru teknar með Holgu. Hún náttúrulega lekur ljósi og þess vegna er jaðarinn og hornin svona dökk. Mér finnst það allavega über svalt. En já vildi bara láta vita af mér um sinn. Heyri í ykkur aftur bráðlega.

föstudagur, 30. maí 2008
Myndband vikunnar... og fleira.
Já halló. Ég er rosaglöð því í dag var síðasti kennsludagurinn. Vúhú. Ég á samt eftir að sakna krakkanna smá. Vikan endaði á því að við fórum upp í Íþróttahús og horfðum á nokkrar Suður-Kóreskar stelpur sýna dansa og tae kwando. Þær voru ekkert smá einlægar og bara æðislegar og ég skemmti mér vel. Síðan föðmuðu þær alla sem voru í húsinu. ALLA já.

Ég held líka að sumarið hafi komið síðdegis í dag með rigningu, svartaþoku og öllu tilheyrandi. Dæmigert. En jæja ég er að fara til Barcelona yfir verslunarmannahelgina þannig að ég hlýt að fá einhverja sól. (Voða ekki kominn júní og ég strax búin að gefa sumarið upp á bátinn).
Annars ætla ég að koma hérna með myndband vikunnar sem er að þessu sinni með snillingnum Chris Isaak. Eins og ég þoldi ekki þennan mann þegar ég var krakki. Fannst hann hræðilega hallærislegur en í dag finnst mér hann æði. Lögin hans eru æðislega falleg og skemmtileg. Go walking down there er m.a.s. eitt af uppáhaldslögunum mínum bara ever. Rockabilly gaur sko og svolítið crazy sumarlegt video.

þriðjudagur, 20. maí 2008
Myndband vikunnar
Myndband vikunnar er að þessu sinni með Supergrass sem mér finnst afskaplega vanmetin hljómsveit. Þegar ég heyrði þetta lag fyrst þá hélt ég að þetta væri gamalt lag. Það vandist svo fljótt og ég held að það sé bara jákvætt. Njótið.
mánudagur, 19. maí 2008
Myndlistarsýning, árshátíð og bara blóm...
Já það er búið að vera brjálað að gera. Síðastliðinn fimmtudag voru krakkarnir í sérdeildinni í skólanum með alveg frábæra myndlistarsýningu og seldu nær öll verkin sín. Þetta voru vatnslitamyndir, akrýl á striga, lágmyndir, leirmunir og ég veit ekki hvað og hvað og vakti þetta mikla lukku.
Síðasta vika var öðruvísi í Grunnskólanum. Ég sá um ljósmyndahóp og verð ég að segja að það komu margar frábærar ljósmyndir hjá krökkunum. Öðruvísi dögum var svo slúttað með Árshátíð á föstudagskvöldið.
Brjáluð stemmning eins og sjá má. Kannski fullmikið spilað af tekknómúsík en hei, krakkarnir fíluðu það og það er það sem skiptir máli. Hverjum er ekki sama um mig.
Smá vormynd hérna í lokin. Skólinn er alveg að klárast og ég bara get ekki beðið eftir að geta farið í sólbað og labbað í bænum og halda reggea partíið sem ég ætlaði að halda í fyrra.
Ble ble.
Brjáluð stemmning eins og sjá má. Kannski fullmikið spilað af tekknómúsík en hei, krakkarnir fíluðu það og það er það sem skiptir máli. Hverjum er ekki sama um mig.Smá vormynd hérna í lokin. Skólinn er alveg að klárast og ég bara get ekki beðið eftir að geta farið í sólbað og labbað í bænum og halda reggea partíið sem ég ætlaði að halda í fyrra.
Ble ble.

miðvikudagur, 14. maí 2008
Myndlistarsýning
Nemendur í sérdeild Grunnskóla Vestmannaeyja verða með verk sín til sýnis og sölu í Miðstöðinni fimmtudaginn 15. maí kl. 15-18.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Allir eru hjartanlega velkomnir.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)