laugardagur, 27. desember 2008
Ja hérna. Ég held að það hafi aldrei liðið svona langur tími á milli blogga hjá mér. Ég er upptekin manneskja. Skólinn hefur gengið ágætlega og það er mikið að gera. Ég er búin að vera blönk í allt haust þannig að ég hef verið að vinna 2 vinnur með skólanum. Annars vegar að bera út dagblað og vinna á frístundaheimilinu Glaðheimum. Ég er nú hætt að bera út blaðið sökum svefnskorts. Það er svolítið mikið á mann lagt að vakna kl. 4 - 5 og bera út, fara svo í skólann, fara svo beint í vinnu, í ræktina (þegar ég nenni), heim að elda, læra, fara að sofa loksins um og eftir miðnætti og vakna svo aftur kl. 4. Úff. Eltist líka um 10 ár eða eitthvað í haust. En ég hef samt sem áður heilsuna sem er gott. Er bara að njóta lífsins í eyjum. Ó já.
sunnudagur, 31. ágúst 2008
En já...
Já ég er flutt í Reykjavíkina og líður vel þar. Skólinn byrjaði í síðustu viku og á nýnemakynningunni þurftum við að semja dans og sýna hann... Já ég er ekki að grínast. Ég samdi alveg minn dans og það og svo þegar tónlistin byrjaði þá bara fraus ég. Við áttum að dansa nokkrum sinnum við mismunandi tónlist og túlka dansinn okkar eftir tónlistinni. Úff. Greinilegt hverjir voru að byrja í leiklist og hvaða stelpur voru einhverjar listdanspíur. Ekkert nema píróett og læti. En skólinn sjálfur er samt skemmtilegur. Spennandi fólk og svona. En já svona til að létta lund ykkar á sunnudegi sem er afar þunnur finnst mér þá er eitt hérna sem er ógeðslega fyndið. Maður spyr sig hvort þetta sé einn og sami maðurinn í mismunandi víddum??
þriðjudagur, 19. ágúst 2008
plöh
Jæja það fer brátt að líða að leiðindunum, þ.e.a.s. flutningunum. Mér finnst ekkert leiðinlegra en að flytja draslið mitt. Pakka því niður bara til þess að taka það upp aftur á öðrum stað. Svo er alltaf eitthvað sem að eyðileggst. En já vonandi reddast þetta nú samt. Búin að panta bíl þannig að þetta er allt að koma. Annars lítið að frétta. Er bara afskaplega fegin að hafa ekki mætt í vinnu í gær múhahaha. Það að búa í 101 leggst mjög vel í mig. Hef reyndar búið þar áður og það er ofsalega gott að geta labbað hvert sem maður vill. Auk þess keypti ég mér svo fallegt hjól sem ég ætla að vera dugleg að nota. En nú ætla ég bara að halda áfram að drepa tímann fram að flutningum. Horfa á Ólympíuleikana á fullu. Verð samt að kvarta yfir hve lítið er sýnt frá fótbolta. Ömurlegt. Frekar er sýnt frá þúst Litháen - Brasilía í körfubolta eða eitthvað álíka. Hverjum er ekki sama um það?Svo eiga systur mínar 2 afmæli í dag! Til hamingju með afmælið systur :D
Túrilú
fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Quadrosables
Hola AmigosJá ég er komin frá Barcelona og er hress og tönuð. Það var rosalega heitt úti og gott veður og við notuðum tímann alltaf í eitthvað annað en sólbað. Þegar svo loksins átti að fara á ströndina þá var skýjað. Ömó en ég er samt sem áður leðurtönuð. Langt síðan að ég verið svoleiðis. Ég verslaði og verslaði fyrir allan peninginn minn úti. Bætti fötum við í safnið mitt. Hef samt miklar áhyggjur af því að nýju fötin mín komist ekki fyrir í þetta safn þar sem það er orðið of stórt. Annars er Barcelona afskaplega falleg borg. Það er greinileg
t að hvert smáatriði hefur verið úthugsað. Stéttarnar eru m.a.s. flúraðar. Við skoðuðum slatta þarna úti. Hefðum samt getað skoðað meira en hey ég var í fríi og nennti ekki að gera of mikið. Við skoðuðum Gaudi garðinn og safnið. Garðurinn var æði og síðan var Sagrada Familía rosaleg. Eins og bygging á annarri plánetu. Ég læt fylgja með nokkrar myndir frá ferðinni. Aðallega Gaudi garðinum og La Bocceria sem er geggjaður matarmarkaður. Ég var alveg hugfangin þar inni. Þúst sjáiði allt nammið. Svo litríkt og fallegt.fimmtudagur, 31. júlí 2008
Maður lifandi
Hæ hó vil bara láta vita að ég er enn á lífi og í fullu fjöri. Eftir nokkra klst mun ég leggja af stað til Barcelona þar sem ég verð í eina viku að living da vida loca. Það er eins gott að það verði gaman því þjóðhátíðin í ár verður víst allsvaðaleg. En mig langar samt meira til útlanda. :P Síðan kem ég heim og hefst þá handa við að flytja dótið mitt í nýju íbúðina sem ég er að fara að leigja. Ég er að verða 101 hyski enn eitt skiptið. En við heyrumst síðar þegar ég nenni að skrifa eitthvað innihaldsríkt og fræðandi. Ble.
laugardagur, 21. júní 2008
Fjör
Gæti það verið að Angelina Jolie sé að leika í góðri mynd loksins? Ég skil ekki alveg hvernig hún fer alltaf að þessu. Gone in 60 seconds, Tomb Raider þúst kommon. (Sky Captain of tomorrow og Girl interrupted eru reyndar undanteknar) Ég sá trailerinn að Wanted í gær og fannst hann frekar töff og mig langar að sjá í bíó. Ekki spillir fyrir að myndin fær 7,6 á imdb og James McAvoy leikur í henni. Og hann er náttúrulega súperhot gaur. En það vita náttúrulega allir.En já það sem er að frétta af mér er að ég er orðin 27 ára og orðin rauðhærð. Já nú eru krakkarnir ekki lengur að rugla mér saman við Ronju lengur. Kannski bara Línu en hún er líka kúl. Hver vill ekki vera eins og Lína töffari?
Mínir menn í Rússlandi komust áfram í undanúrslitin áðan með góðum sigri á Hollandi. Gjörsamlega yfirspiluðu þá. Pavlyuchenko er náttúrulega geðveikur og hinn framherjinn líka. Líta soldið út eins og fermingarstrákar. Þeir eru líka alltaf sætastir...
Er einhver í stuði í vikunni fyrir að gera eitthvað skemmtó? Pikknikk eða fótbolta eða eitthvað??
mánudagur, 16. júní 2008
Vá já ég er búin að vera netlaus í þónokkuð langan tíma. Tölvan biluð og svo skrapp ég til Reykjavíkur í viku. Fór eiginlega bara um leið og ég komst í frí frá vinnu. Oh það er svo gott. Ég fór með fyrstu filmuna úr Holgunni minni í framköllun. Þessi mynd minnir á það hve sumrin eru frábær. Þó að þau séu ekki brjálæðislega heit þá er allavega ekki snjór. Svalandi!
Það misheppnuðust 4 af 12 myndum af þessari filmu. Þurfti endilega að gera einhverjar tilraunir með flassið og það varð algert mis. En hinar myndirnar voru bara fínar. Það er svo skemmtilegur karakter í myndum sem eru teknar með Holgu. Hún náttúrulega lekur ljósi og þess vegna er jaðarinn og hornin svona dökk. Mér finnst það allavega über svalt. En já vildi bara láta vita af mér um sinn. Heyri í ykkur aftur bráðlega.
Það misheppnuðust 4 af 12 myndum af þessari filmu. Þurfti endilega að gera einhverjar tilraunir með flassið og það varð algert mis. En hinar myndirnar voru bara fínar. Það er svo skemmtilegur karakter í myndum sem eru teknar með Holgu. Hún náttúrulega lekur ljósi og þess vegna er jaðarinn og hornin svona dökk. Mér finnst það allavega über svalt. En já vildi bara láta vita af mér um sinn. Heyri í ykkur aftur bráðlega.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

